fredag 12. november 2010

Heimsókn á KK

Jæja þá er þetta orðið raunverulegt. Fór í dag og hitti Anne sem sér um ljósmæðranámið hér í Bergen. Fékk kynningu á skólanum hér, fór í myndatöku fyrir stúdentakort og  í heimsókn á bókasafnið. Finnst eins og ég sé að byrja í nýju námi á nýju tungumáli ;) Fórum svo saman á KK (Kvinne kliniken) á Haukeland sykehus þar sem ég fékk kort sem er aðgangskort inn á ýmsa staði í byggingunni og fatakort. Já hér þarf ég sérstakt kort til að fá vinnuföt. Fer með fína kortið mitt í sjálfsala og fæ föt og þegar ég er búin að nota þau fer ég með þau í annan sjálfsala!!  Ef ég klikka á því, fæ ég ekki ný ;) Verknámið leggst vel í mig og ég hlakka til að byrjar aftur. Þó það sé nauðsynlegt að fá frí er orðið allt of langt síðan ég hitti ólétta konu síðast  ;)
Annars höfum við það ótrúlega gott hér úti. Auðvitað eru sumir hlutir flóknari en aðrir og það tekur tíma að komast inn í hlutina í nýju landi en í heildina erum við mjög ánægð. Karen Hekla þrífst vel í skólanum og Axel Ýmir í leikskólanum. Þau eru ótrúlega dugleg í norskunni og leiðrétta mömmu sína ef framburðurinn hjá henni er ekki réttur ;)
Kær kveðja frá Bergen

Ingen kommentarer:

Legg inn en kommentar