Síðasta sunnudag fór ég í fyrsta sinn í vinnuna í nýju landi. Dagurinn var mjög krefjandi þar sem ég reyndi af fremsta megni að gera mig skiljanlega á norsku og fékk leiðbeiningar á sænsku frá hjúkkunni sem var með mér á vakt ;) Fyrsta verkið var að aðstoða eldri konu við að komast á fætur og hélt ég að það ætti nú að vera tiltölulega einfalt verkefni. Það gekk þó ekki alveg eins og í sögu og henni ég vera algjör hálfviti að vita ekki hvað nærbuxur hétu á norksu og lét mig alveg finna fyrir því. En fall er fararheill og eftir þetta gekk dagurinn alveg ágætlega ;)
Deildin sem ég er að vinna á er glæný og því allt soldið losaralegt og ég ekki sú eina sem veit ekki hvar hlutirnir eru. Hugsa að það verði bara mjög fínt að taka aukavaktir þarna og læra svolítið meira í norskunni :)
Annars gengur lífið sinn vanagang og við erum alltaf að komast betur og betur inn í hlutina hér. Norskan kemur ótrúlega fljótt og er ég meira að segja farin að geta gert mig skiljanlega á norsku í síma! Það finnst mér mun erfiðara en að tala við fólk auglitis til auglitis vegna þess að þá er ekki hægt að nota látbragð. Búin að nota mikið af því undanfarið og hugsa að ég sé í mjög góðri æfingu fyrir Actionary ;)
Kveðja frá Bergen
Ingen kommentarer:
Legg inn en kommentar