Síðasta sunnudag fór ég í fyrsta sinn í vinnuna í nýju landi. Dagurinn var mjög krefjandi þar sem ég reyndi af fremsta megni að gera mig skiljanlega á norsku og fékk leiðbeiningar á sænsku frá hjúkkunni sem var með mér á vakt ;) Fyrsta verkið var að aðstoða eldri konu við að komast á fætur og hélt ég að það ætti nú að vera tiltölulega einfalt verkefni. Það gekk þó ekki alveg eins og í sögu og henni ég vera algjör hálfviti að vita ekki hvað nærbuxur hétu á norksu og lét mig alveg finna fyrir því. En fall er fararheill og eftir þetta gekk dagurinn alveg ágætlega ;)
Deildin sem ég er að vinna á er glæný og því allt soldið losaralegt og ég ekki sú eina sem veit ekki hvar hlutirnir eru. Hugsa að það verði bara mjög fínt að taka aukavaktir þarna og læra svolítið meira í norskunni :)
Annars gengur lífið sinn vanagang og við erum alltaf að komast betur og betur inn í hlutina hér. Norskan kemur ótrúlega fljótt og er ég meira að segja farin að geta gert mig skiljanlega á norsku í síma! Það finnst mér mun erfiðara en að tala við fólk auglitis til auglitis vegna þess að þá er ekki hægt að nota látbragð. Búin að nota mikið af því undanfarið og hugsa að ég sé í mjög góðri æfingu fyrir Actionary ;)
Kveðja frá Bergen
onsdag 24. november 2010
fredag 12. november 2010
Heimsókn á KK
Jæja þá er þetta orðið raunverulegt. Fór í dag og hitti Anne sem sér um ljósmæðranámið hér í Bergen. Fékk kynningu á skólanum hér, fór í myndatöku fyrir stúdentakort og í heimsókn á bókasafnið. Finnst eins og ég sé að byrja í nýju námi á nýju tungumáli ;) Fórum svo saman á KK (Kvinne kliniken) á Haukeland sykehus þar sem ég fékk kort sem er aðgangskort inn á ýmsa staði í byggingunni og fatakort. Já hér þarf ég sérstakt kort til að fá vinnuföt. Fer með fína kortið mitt í sjálfsala og fæ föt og þegar ég er búin að nota þau fer ég með þau í annan sjálfsala!! Ef ég klikka á því, fæ ég ekki ný ;) Verknámið leggst vel í mig og ég hlakka til að byrjar aftur. Þó það sé nauðsynlegt að fá frí er orðið allt of langt síðan ég hitti ólétta konu síðast ;)
Annars höfum við það ótrúlega gott hér úti. Auðvitað eru sumir hlutir flóknari en aðrir og það tekur tíma að komast inn í hlutina í nýju landi en í heildina erum við mjög ánægð. Karen Hekla þrífst vel í skólanum og Axel Ýmir í leikskólanum. Þau eru ótrúlega dugleg í norskunni og leiðrétta mömmu sína ef framburðurinn hjá henni er ekki réttur ;)
Kær kveðja frá Bergen
Annars höfum við það ótrúlega gott hér úti. Auðvitað eru sumir hlutir flóknari en aðrir og það tekur tíma að komast inn í hlutina í nýju landi en í heildina erum við mjög ánægð. Karen Hekla þrífst vel í skólanum og Axel Ýmir í leikskólanum. Þau eru ótrúlega dugleg í norskunni og leiðrétta mömmu sína ef framburðurinn hjá henni er ekki réttur ;)
Kær kveðja frá Bergen
Abonner på:
Kommentarer (Atom)